fimmtudagur, október 12, 2006

Klaustursbleikja

Klaustursbleikja er varasamur andskoti.

þriðjudagur, október 10, 2006

Senn fer vetur í hönd. Sumarið á leið út, hugsanlega úr fæti eða í gegnum analinn. Veit ekki hvaða leið þar fer. Veturinn er tími Blognaldsins enda birtast honum þá óteljandi sýnir og sannleikur sem sumarið sveipar hulu. Nú er ráð að rita í gulu.

Blognaldur mun nú snæða súrmeti og fjallleginn innmat úr úlfahjörðum til að öðlast ritfærni á ný.
Nú þegar birtast honum sýnir af marglitum samkynhneigðum listamönnum að skrautskrifa níð um forynjur á álagasteina. Sögur af samlífi marglytta og meyja, mjaðmalistakvenna og peyja og jafnvel ástir mosa og mattadorsnillinga. En allar sögur og sýnir bíða fyrstu snjóa. Það verður því bið um hríð ...
Blognaldurinn poppaði síðuna aðeins upp. Hægt að kommenta og öll veraldarsýra er velkomin. Handanheimabasi bannaður.
Mengelation of high degree ...

sunnudagur, apríl 09, 2006

Bekka og Cho

"Er ég illkynja mein í vitund þinni" æpti Rebekka að fyrrverandi ástmanni sínum, Chin Cho Cha. Sá var margballa og mormónatrúar. "Hvort viltu halda mér eða sleppa þú ógurlegi undrafoli kínverskrar náttúru?"
"Ég hafna þér lúsuga hóra, þú er eitt sinn varst drottning minna óra. Merkilegt að þú skulir tóra eftir öll þessi mök og haldist enn rök. Ég hef marga belli og til að halda velli verð ég að sneiða hjá konum sem hafa legið með mínum sonum. Chin tók þig í gær, Cho í dag og Cha fyrir ári. Enn er lúsugur hans nári. Chas þ.e. Láttu þig hverfa þú víðskauta herfa."
Við þetta andsvar varð Rebekka snælduvitlaus. Hún rakaði skaut sitt og krika og hafði mök við álftir og blika. Er liðin var vika í hreðjum fugla hætti hún að rugla og gerðist rennilásasmiður í Næróbí. Skál fyrir því.
Öldruð sms

I

Mörk raunveruleikans við viðbjóð hins erlenda þvags urðu ógreinilegri með hverjum dropa sem féll. Kettir umturnuðust og klóruðu nafn hins skítuga á kynfæri sín.

II

Taugasímar atorku minnar eru allir utan þjónustusvæðis. Vitundin dofin eftir stríðsöskur frumhvatanna. Í djúpinu skilst sannleikurinn frá mér í neti örlaganna.

III

...og upp úr gröfunum spruttu þeir sem óðir menn og ældu spínati. Kynmök englanna héldu sólinni í skefjum. Umlukin glerkúlu féll veröldin saman í lófa mér...

IV

Í golu úr rössum hinna tannlausu berst tvíballa lífvera í skaut skautadansarans Yrju Kress. Hún fagnar því og festir nakta álfa á lúsaber. Ljós blikka í álftum.

laugardagur, mars 25, 2006

Ég nem staðar við hægra gagnauga þitt og plasera þar grísku þarmasafti. Ég ota að þér hægri framlim af útdauðri skólpveru og pressuðum safa úr rottulungum. Ég leigi líkamspenslakonu til að maka á þig mannasaur og mengun. Þú ert viðbjóður. Drulla. Megir þú ráðvilltur í kindabuddum sulla. Megi gaddavírsvagínur riðlast á þér um ókomna tíð.