fimmtudagur, júlí 29, 2004

Ég horfi á þig í gegnum nóttina. Frussa á spegilmynd þína í postulínvasa. Orga nafn þitt í gjallarhorni fáránleikans. Skrifa upp á andlát hugmyndarinnar um þig í hástöfum með blóði úr gómi mínum. Míg á grafir forfeðra þinna. Hlæ loks eins og rotta að rotþróarhreinsun. Sofna svo á ný án þess að hafa vaknað.

laugardagur, október 25, 2003

Í endurteknum unaðsstunum hins færeyska taugalæknis, One Kart, leyndist grunnhljómur viðbjóðsstefsins KURÍTE KNATT. Smágerð limkvikindi gefa hljóminn frá sér og hafði One Kart étið slík kvikindi með því að merja þau í ætilegar einingar með ljósmyndasafni Geirlaugar frænku sinnar. Sú var önduð. Að því búnu lagðist hann með tveggja metra ástkonu sinni, Stelnekóvu, og hafði við hana hressileg mök. Stelnekóva eða Rakel Mist Ásbrandsdóttir, eins og hún var jafnan kölluð var vafin inn í loðfeld úr úlfsham og smurð með ábrystum. Jakob frá Mýrum hafði hannað skautgat á búninginn sem One Kart náði að nýta sér. Þau voru lengi að og svitnaði Rakel eins og hundur í heyrúllu. Eftir 17 mín og 46 sekúndur gaf One Kart frá sér hljóðin fyrrnefndu og við það fór rafmagn af Færeyjum.

Það kom sér afar illa fyrir Stíg frá sléttu sem var að rafgrilla ástmann sinn til 14 ára, Albert óða. Berti klikk hafði nefnilega gengið fram af Stíg þegar hann varpaði fingurbjargarsafni Stígs fram af björgum. Hann gat enga björg sér veitt þegar Stígur steig á stofnrana hans og sló hann í öngvit. Berti vaknaði í grillinu og var orðið ansi heitt þegar að One Kart byrjaði að góla og straumrof varð á eyjunum. Við það varð allt í góðu hjá peyjunum og sættir náðust.

Einnig náðust myndir af Eiríki Svanna þegar hann læddist ofan í sængurver hjá miðaldra hjónum og hóf að spila á geitastokk. Geitastokkur er eins og menn vita hljóðfæri Kölska og gerir menn viti sínu fjær af hreðjaspennu og löngum í Vicks túttusykur með sítrónubragði. Menn rjúka með greipar um grjón útí næstu smávöruverslun og heimta Vicks, en það er ætið uppselt. Þá selja menn upp af viðbjóði. Gísli birtist þeim þá, já sá frá Uppsölum, og frelsar þá með heyvarningi sem menn nudda milli fótanna og hneggja ískyggilega um leið. Þá líður mönnum vel, fara með vísur útigangsfólks og knapa og líða útaf í sæluvímu.
Eiríku Svanni átti Vicks og neitaði að fara úr verinu. Eiki bjó með þeim hjónum í ein fimmtán ár og hvarf aldrei úr verinu. Hann kramdist til bana í verinu þegar eyjaviðbjóðurinn Færi föskæri nauðgaði þeim hjónum fyrir misskilning.

Nú er mál að linni.

laugardagur, október 04, 2003

Grímseyjarskelfirinn var snúinn aftur. Hann reis upp úr hafinu laust fyrir utan Grímsklett og skóf af sér þorskasaur og þara. Hann gekk vönduðum skrefum að glæsilegasta kletti Grímseyjar og rak besefann af afli í grjótið. Við það sökk helvítið. Grímseyjarskelfirinn rak þá við á nokkra sjófugla og fólk á særeki og hvarf þvínæst í hafið.

Hákon Aðalbjörnsson skytta kom sér fyrir í höfði Brynhildar Ragnarsdóttur aflfræðings á dögunum. Hann skýtur niður sérhverja hugsun sem hefur sig til flugs í huga hennar. Fyrir vikið er ekkert hugmyndaflug í kerlingunni. Það eina sem henni dettur í hug að gera er að raspa hákarl. Konna skyttu finnst sú hugsun of falleg til að hægt sé að skjóta hana. Viðkvæmur maður Hákon.

Laxeldisstöð Mávars og Magna gafst upp á bægslaganginum og hóf nýverið framleiðslu og ræktun á kynfærum í geimverur. Þau þykja falleg.

Indverska ljósmyndarafælan Agíra Nagasæjah háði athyglisvert spretthlaup við þrífættan kött á dögunum. Kötturinn Lugi Anoxi Bragarer hefur fót undir miðjum kviðnum sem gefur honum sérstaka spyrnu en lélegt jafnvægi. Sérfræðingar í kattajafnvægi festu því á hann jurtabollur til að auðvelda honum hlaupið. Lugi stakk kerlingarhelvítið af og meig á hana af ískaldri fyrirlitningu að hlaupi loknu. Agíra tók því vel.

Nú verður fjör í favorites möppunni hans Lárusar.


föstudagur, september 12, 2003

Úff, er afar svartsýnn fyrir hönd mannsins um þessar mundir. Hvar getur maður sótt um að vera fluttur 200 ár fram í tímann? Vil nú reyndar taka nokkra menn með mér.

föstudagur, maí 02, 2003

Sigmund Freud

Á laugardaginn verður haldin ráðstefna til heiðurs Sigurjóni Björnssyni sálfræðingi. Fjallað verður um sálgreiningu. Sigmund Freud verður væntanlega fyrirferðarmikill í umræðunni enda gerði hann afar heiðarlega tilraun til að skilja hugarheim mannsins. Held að ekki hafi verið vasklegar fram gengið í leit að skilningi á háttalagi okkar. Kenningar Freud eru vitaskuld ekki óaðfinnanlegar. Enda vart hægt að búast við því að gerð verði fullnægjandi grein fyrir háttalagi mannsins. Forspá og stjórnun mannlegrar hegðunar er ekki innan seilingar og verður væntanlega aldrei. Freudarinn sýndi samt snilldarleg tilþrif sem ekki eiga sér hliðstæðu í sálfræðinni.

Sigurjón Björnsson hefur gert sér lítið fyrir og þýtt verk Freud á íslensku. Ekki hefur það verið létt verk. Hann er því vel að þessum heiðri kominn. Ég var við nám í sálfræði við HÍ þegar að Sigurjón lét af störfum. Rita um það síðar. Það var merkileg upplifun að mæta í tíma til hans eftir að hafa hlýtt á empíriskar þulur samkennara hans.

Ég verð að viðurkenna að ég hef blendnar tilfinningar til sálfræðinnar sem fræðigreinar. Það eru einkum 3 kappar sem sitja í manni eftir námið. Freud og Skinner, sem eru á vissan hátt andstæðir pólar í fræðunum, og svo norsarinn Smedslund sem hakkar í sig sálfræðibullara. Magnaður maður Smedslund.
Sálfræðin í dag, sem fræðigrein, nær sér líklega best á strik sem varðhundur heilbrigðrar skynsemi.


föstudagur, apríl 25, 2003

Nef fyrir ísskápum


Sú ótæka heimilssvívirða andlát ísskápsins fór fram í vikunni. Skápurinn fílaði ekki stórinnkaup húsmóðurinnar á framandgrasi og súisíderaði.
Fjöltattúa ísskápafræðingur kom hér með gas og græjur og reyndi að blása lífi í hann en það var um seinan. Hjartað hafði gefið sig.
Arftaki hans er fundinn og verður ferjaður í hús við fyrsta tækifæri.

Narta hér í Beck's. Sá drykkur er tiltölulega laus við vöndun. Kældi helvítið í höndunum.

Nú herjar á mig ískyggilegt kvef. Það brakar og brestur í nösunum á mér. Geysilega hressandi að kvefast við og við. Furðulegt hversu hraustlega nefið hefur orðið yndir í baráttu skynfæranna um aðgang að meðvitundinni. Neflaus maður myndi fúnkera ágætlega. Afar mörg kvikindi reiða sig á nefið og útpælda greiningarmiðstöð þess. Nefjun mannanna er e.t.v. óþörf að mestu. Hugsanlega hafa nasirnar greiðan aðgang að heila okkar en sýna þá slægð að taka sveig fram hjá meðvitundinni sem er því grunlaus um starfsemi þess.

Finn lykt af svefni.

laugardagur, apríl 19, 2003

Dvergurinn úr rekkju!


Jæja, er nú risinn úr rekkju, kl. 09. Ef ég væri 60 cm smærri mætti segja að ég væri dvergurinn úr rekkju.
Snáðinn fer hamförum í glímunni við leikföng hér á gólfinu. Étur þau flest.
Aðrir liðsmenn familíunnar sofa. Hef ekki hugmynd um hvað mig dreymdi í nótt. Það er djöfullegt. Jú, nú man ég það. Þvílík sýra. Margliða mannasýra og þeytingur um furðuheima þess sem aldrei gerist. Get eiginlega ekki greint frá draumum næturinnar, þeir eru of flóknir.
Ætla nú að herja á kælitæki heimilisins í leit að árbít.
Ætli séu einhverjar líkur á því að Hannes Hrólfsson bóndi arki nú um tún í leit að dýrbít?

Hallur yndir hallarhöllun?


Nú er nótt. Föstudagurinn langi að baki. Kristur hékk með þjófum fyrir tæpum 2000 árum.
Hvort ætli sé vænlegra að liggja yndir líni eða liggja í víni á nóttu sem þessari?

Ég ætla yndir línið. Gerði mér nefnilega lítið fyrir seint á síðasta ári og eignaðist son. Hann vaknar árla. Ég ætla að vakna með kappanum samgleðjast honum í ótæmandi lífsgleði hans. Ég velti því stundum fyrir mér þegar ég horfi á hann iðandi af lífi og brosandi út að eyrum hvort að maður hafi í fljótfærni sinni misst sjónar af fjörinu í tilverunni. Hvort maður skipti út brosi fyrir bögg með hverju árinu sem líður. Maður verður þá orðinn þrælböggaður um fimmtugt. Og alveg svívirðilega fúll öldungur. Ef til vill getur maður gírað sig upp í bullandi gleði og kæruleysi, hoppað um grundir og sönglað almættinu dýrðarsöngva. Reyndar er ég afar sáttur við almættið. Ber blendnari tilfinningar til sjálfs míns. "Í auga þínu, allt í heimi ásýnd fær, eins þú horfir, eins það grætur eða hlær" sagði einhver Þjóðverji. Stundum sér maður ekki þetta bullandi fjör sem auðvitað blasir við.

Hvað er þá til ráða? Hugsanlega að ganga fyrr til náða. Ég er farinn að hallast að því. Hallast að höllun. Hef aldrei hallað mér í höll. Hvernig ætli það sé? Ætli séu til menn sem eru sérdeilis hallir yndir hallarhöllun? Vilja hvergi annar staðar halla höfði. Ætli séu til menn sem vegna lífræðilegra furðuglegheita geta alls ekki hallað höfði? Þurfa því að gista uppréttir?

Kettir er afspyrnuvandaðir svæflar. Sofna með listrænum tilþrifum hvar og hvenær sem er. Afar farsælt að sofna með slíkum öndvegisdýrum. Svo er hægt að kveikja á mali í þeim ef manni gengur illa að sofna sjálfum. Ef það svæfir mann ekki þá er einfaldlega einhver hundur í manni og tilgangslaust að reyna að sofna.

Well, hverf í svefn. ZZZZZZZZZZZZZZZZZ

mánudagur, apríl 14, 2003

Dauði og gjöreyðing!

Langt líður á milli blogga hjá mér. Svo langt að innrás stórvelda í frumheima rúmast á milli þeirra. Afar dapurlegt fyrir manninn að útkljá deilumál með járni og púðri. Framtíðin mun væntanlega fellan þungan dóm yfir þessu stríði. Að vísu er afar líklegt að Saddi sé ómenni hið mesta en erfitt er að trúa því að eina leiðin til að fanga hann sé að sprengja sér leið að honum í gegnum þegna hans.

Alheimssýran hefur yfirgefið mig. Leita hennar um víðan völl.

laugardagur, janúar 11, 2003

Jija!
Mættur til leiks á ný eftir töluvert hlé. Tilveran enn í föstum skorðum. Jörðin snýst í kringum Sólina og hákarlar svamla í höfum heimsins.
Hvarf inn í nývídd um tíma. Skálaði þar við gálur og ómenni. Rak við á bál með skröttum og meig á kirkjur. Hljóp um auðnina í rauðbrúnum sokkabuxum og öskraði: "Þetta er kjaftæði Hreggviður, kjaftæði." Málaði handrið með óskírðum bakarameisturum, Loftur og Löwe uppnefndu þeir sig og flissuðu. Bjargaði lífi skrautfugla sem höfðu grafið sig fasta í slátur. Vingaðist við skjátur. Sneri loks í samvídd okkar á ný.

miðvikudagur, nóvember 20, 2002

Þýska fartið
Þýski viðrekstrarþátturinn í barnauppeldi RÚV um daginn var hrein snilld. Sérstakt þegar að öldungurinn saug gasað hveiti upp í þarminn aftur. Afar vönduð tilþrif.
Sætraðir
Undarleg sætröð herjaði á mig um nótt nýverið. Ég var staddur á sjúkrahúsi og var að fá niðurstöðu úr einhverri rannsókn. Leikarinn Willem Dafoe var læknir í þessum draumi og greindi mér frá því að rannsóknin hefði ekkert markvert leitt í ljós. Ég spurði hann þá umsvifalaust að því hvort að ekki gæti verið um hemólýtíska streptókokka að ræða. Dafoe kættist ákaflega við þessa uppástungu og ákvað að taka úr mér hálssýni. Sýnatakan fór þannig fram að kappinn tróð upp í mig 20 cm breiðri og líklega um 40 cm langri gúmmíeiningu, rak hana ofan í kok á mér. Ég átti, eins og gefur að skilja, afar erfitt með andardrátt við þessar aðfarir Dafoe og vaknaði í kjölfarið. Furðulegur draumur. Er að velta því fyrir mér hvort ég hafi verið að éta sængina mína í svefni. Kemur væntanlega í ljós ef ég skít fjöðrum næstu daga.

föstudagur, nóvember 15, 2002

Skita
Fátt dregur jafn hraustlega úr heimspekilegum þönkum og skita. Farsæl skita tæmir hugann og hinn efnislegi veruleiki tekur yfir. Hvernig ætli heimspekingar taki á þessum vanda? Ætli þeir skíti minna en annað fólk? Það væntanlega fátt jafn niðurdrepandi og að vera hugfanginn í leit að æðri veruleika þegar að kerfið sendir mann svo bara á settið til skitu. Aldrei hef ég heyrt talað um skitu andans. Draugaskitu er ekki getið í íslenskum þjóðsögum. Veit ekki með himneskar bókmenntir. Ólíklegt að eftirfarandi texti komi þar fyrir: "Kristur mælti af miklum eldmóði og viti, fræddi menn um Föðurinn og framtíð manna. En menn fylltust undrun og á hann litu er hann sagði: sorrý gæs, þarf að bregða mér frá vegna skitu." Hin dæmigerða skita og æðri veruleiki eiga ekki samleið.
Lífveran Vlad
Hin vandaða lífvera Vlad er horfin. Afar forvitnileg lífvera. Geggjun hennar er úthugsuð.

þriðjudagur, nóvember 12, 2002

Ótrúlega svívirðilegt að svissnesk skólp slái Liverpool út úr Meistaradeildinni. UEFA ætti að sjá sóma sinn í að ógilda þessi úrslit hið snarasta.
Í leiðinni ætti UEFA að banna leikskipulagið 4-5-1.

mánudagur, nóvember 11, 2002

"Já, góðan dag, Ragnar Teódórsson hársnyrtir og raflagnaséni hér, ekki eigið þið til forhúðað saltvatn?"
"Haltu kjafti Hannes og einbeittu þér að sólinni!"

laugardagur, nóvember 09, 2002

Dala-Systurnar eru afspyrnuvel rakaðar. Sú yngri er með víst með gráðu í þarmarakstri. Gott að vita af því.

fimmtudagur, nóvember 07, 2002

Hversu stór hluti Sövik ættarinnar ætli sé sofandi þegar þessar línur eru ritaðar?
Það hefur sótt á mig gríðarþreyta við þessar skriftir. Mun fljótlega loka augunum og horfa á draumamyndbönd næturinnar. Maður þyrfti nú stundum að geta hraðspólað yfir draumana. Mig dreymdi t.d. síðustu nótt að ég fór inn í verslun til að kaupa skeið. Ég fann enga skeið enda staddur í glerverslun. Sérlega vandaður afgreiðslumaður tók sig til og smíðaði handa mér hnífaparasett með viðarhandföngum, útskornum. Fé mitt var af skornum skammti. Ég sagði manninum að mig vantaði bara eina skeið. Hann reyndi að malda í móinn og sem betur fer þá vaknaði ég við það. Djöfull er maður leiðinlegur ef mann dreymir bara skeiðarkaup. Furðulegt. Afar ósáttur við ímyndunaraflið þessa nótt.

Ég vonast til að dreyma vandaða erótíska drauma sem gerast í geimnum í nótt. Tími til kominn. Afar vönduð hönnun á geimgallabuddunum á köflum. Einnig væri farsælt að dreyma rímnakvöld með almættinu og aflraunastorknum Höffner. Sé það þó ekki gerast í bráð.
Djöfull langar mig að bregða mér út í garð að urða nokkur hræ. Verst að í kringum mig er allt kvikt.
Held mér nú vakandi. Hef komist að því að svefn hentar illa líkamsstarfssemi minni. Merkilegt að á þessari stundu liggja milljarðar kvikinda sofandi út um alla jörð.
Maður sofnar nú samt á endanum. Annars er nú mesta snilldin að reyna að sofna ekki eftir að maður hefur andað að sér svæfandi gasi. Maður verður að hugsa nýja hugsun á nokkura sekúndna fresti til að sofna ekki umsvifalaust. Ef það tekst ekki sogast maður í svefnheima á svívirðilega lymskulegan hátt. Maður skilur svo ekkert í því þegar maður kemst til meðvitundar á ný hvernig það fór fram hjá manni að maður var að sofna.

Á þessari stundu er sérstaklega líklegt að maður að nafni James hafi verið að skíta hraustlega einhvers staðar á hnettinum. Rétt eins og með svefninn þá eru menn dæmdir til skitu. Ætli sé til tæmandi listi yfir nauðsynlegar athafnir mannsins? Vandað að eiga þann lista. Ætli mök séu á þeim lista? Er maðurinn dæmdur til kynmaka? Jean Paul Sartre sagði að maðurinn væri dæmdur til að vera frjáls. Það var í siðferðislegum skilningi. Maðurinn hefur tilhneigingu til að líta ekki á sig sem dýr heldur sem nánast andlega veru að fullu. Ætli páfinn skíti hvítataði, saur hinna útvöldu? Við hvern teflir helvítið þegar að hann situr við skitu?

Fuglar njóta þeirra ótrúlegu forréttinda að geta skitið fljúgandi. Þeir geta fyrir vikið skitið á hvaða andskota sem er. Alveg hreint magnað. Fisksskitan er er aftur á móti fábreytileg og fjörlaus. Kannski lífga þeir upp á þetta með því að skíta á móti straumi og synda svo undan eigin saur.